Friday, February 10, 2006

Rugludallur er ég..

Haldiði að ég hafi ekki bara hent bíllyklunum mínum niður um ruslalúguna?!?!?!?! dísus kræst, þrufti svo að hringja bjöllunni hjá nágranna konunni og biðja hana að lána mér húslykla svo ég kæmist inn í ruslageymslu að grafa í tunnunum... svo hrundu hjá mér tvö blóm, annað þeirra meira að segja kaktus!! Og svona til að bæta gráu oná svart þá dóu BÁÐIR gullfiskarnir okkar. Sturtaði greyjunum í klósettið og sagði krökkunum að ég hefði þurft að skila þeim í dýrabúðina vegna þess að þeir væru veikir. Semsagt, einn af þessum dögum.. :/
Enginn hringt til að fá að skoða pleisið, frekar fúlt, en ég þarf þá ekki að taka til á meðan, hehe :)

börnin að borða ís og horfa á Latabæ, og mamman að borða nammi og bíða eftir Idolinu, það alveg toppar kvöldið ef einhver hrynur á bossann á sviðinu!!! hí hí, já ég er kvikindi.

góðahelgihelgi

4 comments:

Anonymous said...

haha hvernig gast þú mist likklan í ruslarennuna??
en flott blogg og hlakka til að þú komir á skagaströnd
;)

ingamaja said...

var nebbla svo upptekin af því að skoða póstinn minn á leið upp stigana, að þegar ég henti ruslpóstinum niður lúguna, þá fóru helv.. lyklarnir með.. :/

Bjarney Halldórsdóttir said...

Úff vona að dagurin í dag verði betri hjá þér.

Anonymous said...

Hahahaha engin nema þú gerir svona vitleysu ;)