Saturday, February 04, 2006

Nýja húsið mitt

Jæja, það hefur mikið gerst á stuttum tíma. Gerði tilboð í hús á Skagaströnd, sem þau tóku, svo ég stökk upp í bíl og brunaði af stað.. með sprungið varadekk í skottinu.. alveg mér líkt og móðir mín yfir sig hneyksluð á kæruleysinu sem ég erfði sko EKKI frá henni :D ha ha ha!!
Húsið er 122fm og bílskúrinn er tvöfaldur og er 60fm, stór garður með flaggstöng og alles og malbikuð innkeyrsla. Algjör draumur semsagt!
Fæ svo afhent í enda maí, svo ég hef nógan tíma til að græja málin, selja íbúðina mína og leyfa krökkunum að klára skólann.
Hann Sigurpáll minn reyndar mjög sorgmæddur, það eina leiðinlega í þessu máli, en við gerum okkar allra besta og ég trúi því að þetta verði bara allt í góðu. kannski við gefum pabbanum bara web cam eða hvað það heitir, svo hann geti séð þau og heyrt þegar hann vill.
bestu kveðjur frá öllum á kántrýströnd.

4 comments:

Refsarinn said...

BANG! og til hamingju með kaupin.

Bjarney Halldórsdóttir said...

Til hamingju með þetta allt saman.

BbulgroZ said...

Það er ekkert annað, til hamingju Inga og co.

ingamaja said...

Ástarþakkir allir saman, þetta er mjög spennandi :)