Wednesday, February 08, 2006

nú liggur vel á mér!!

Íbúðin mín er komin á sölu og ég smyr á hana 16,9m !! hægt er að sjá myndir á fasteignavefnum á mbl. vona svo að þetta gangi bara fljótt og vel, mér er ekkert sérstaklega vel við svona pappírsvesen.
svo er bara sól og sumar í sveitinni framundan og allir fyrir norðan tilbúnir að hjálpa mér við að koma mér fyrir :) gott að eiga góða að.
Er svo að spá í þennan danska kúr, Tótu litlu gengur svo vel að það er varla hægt að tala við hana í síma lengur nema hún sé með fullan munn af gúrkum og paprikum.
Heilsan er svona í betra lagi þessa dagana, kannski hlýindin hafi eitthvað með það að gera... en, er á meðan er :)

6 comments:

BbulgroZ said...

Já það er ekkert annað!! Hvað rekur þig eiginlega norður?? En til hamingju samt aftur : )

ingamaja said...

takk takk :D
burt úr stressinu og látunum, og betra umhverfi fyrir börnin + það að öll mín fjölskylda býr þarna líka, sem er nú aðal ástæðan fyrir þessu brölti

Bjarney Halldórsdóttir said...

Fór að skoða myndir af þessari líka flottu íbúð sjá hér.

Hún er þvílíkt glæsileg veit ekki hvað var eiginlega gert en þetta er örugglega eitthvað fótosjoppað

ingamaja said...

he he he :)
nei nei, það er ALLTAF svona glansandi fínt hjá mér...ehemm...

Anonymous said...

Hlýindi hvað???? Mér finnst nú bara skítkalt úti.
Já og með hana Tótu, mar ætti að taka hana til fyrirmyndir, ekki veitir af á þessum bæ!!!!!!

Bjarney Halldórsdóttir said...

Nei nú er sko aldeilis yfir mig bit og hissa. Enginn nýr póstur í marga, marga daga (eða allavega einn heilan). Hvað gengur á???????