Hvað skal gera?? Langar mest til að setja tærnar upp í loft og prjóna í allan dag, en ég kemst alveg örugglega ekki upp með það :)
var svo búin á því í gærkvöldi að ég var sofnuð um kl.10
Krakkarnir eru að deyja úr spenningi, pabbi þeirra er að koma heim frá köben í dag og lofaði að koma með pakka handa þeim. kannski tekur hann þau í smástund til sín, ég er eitthvað voðalega þreytt.
það er orðið pínu problem að pakka niður, get eiginlega ekki pakkað miklu meira í bili, ekki nenni ég að búa í tómri íbúð í heilan mánuð og einhvern veginn þarf maður allt þetta drasl í kringum sig :) hehe..
ég gæti nú örugglega byrjað á að þrífa eitthvað... ef ég bara nennti því...hmmm... voðalega er ég jákvæð í dag :D ha ha ha!!!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
1 comment:
Æ greyið mitt, og ég er of þreytt til að heimsækja þig, vantar samt smá aðstoð í prjónaskap svo ég kem eins fljótt og ég mögulega get.
Post a Comment