Saturday, December 29, 2007

gleðileg jól!

Erum eins og flestir vita í Reykjavík, í góðu yfirlæti og allir mjög ánægðir með vel heppnað hátíðahaldið.
Vildi bara láta vita af okkur. Komum heim 1. eða 2. jan. fer eftir veðri.

Þakka innilega þeim sem sendu okkur jólakort, þau bíða eftir mér heima, ég fór svo snemma í bæinn að ég náði ekki að taka þau með mér.

Fór að hitta gigtarpyntingarmanninn í mjóddinni, hann sprautaði í fingur og tær og ég íhugaði alvarlega að sparka í hann á meðan. En ég er góð kona og geri ekki svoleiðis vitleysu :D he he.
Sagði honum að sprauta bara eins og hann vildi því ég ætlaði að taka upp píanónámið aftur.

jæja, ég skrifa meira á næsta ári.

Hafið það öll gott um áramótin, og kærar þakkir fyrir öll skemmtilegu commentin á árinu.

3 comments:

BbulgroZ said...

Þú ert snillingur Inga, takk fyrir síðast. Frábært að sjá gamla félaga aftur :)

Bjarney Halldórsdóttir said...

Gleðilegt nýtt ár!

Anonymous said...

Jæja, á bara ekkert að blogga neitt á nýja árinu???