Friday, December 15, 2006

Happy hour!


Krakkarnir eru í afmæli hjá bekkjarfélaga, og það þýðir happy hour fyrir mig á meðan :) he he, þetta er orðið afskaplega ljúft, þarf ekki lengur að fara með þeim í afmælin og elta þau um allt pleisið með súkkulaði og kók yfir mig alla.

allt gott að frétta, það féll þessi dúnamjúki jólasnjór í gær, og þetta er bara nánast eins og púður, ekkert smá flott að sjá hvað allt er yndislegt og fallegt með öllum jólaljósunum.... já ég er svo mikið jólabarn inn við beinið að ég á það til að fá kökk í hálsin á þessum árstíma. Er líka að smita börnin af þessari jólaveiki því ég dreg þau í bíltúra nokkrum sinnum í viku bara til að skoða jólaljósin í öllum gluggum og dást að útiskreytingum og ljósum.

Jólasveinninn er smátt og smátt að rýja mig inn að skinni, en þetta er bara svo rosalega gaman. Sonur minn kom í morgun og vakti mig, snöktandi með skeifu, "ég er ekkert rosalega glaður mamma" jólasveinninn hafði gefið honum playmo dót, og í kassanum var lítið barn í kerru, systir og pabbinn.... engar byssur og ekki eitt einasta sverð!!!!! ...hmmm.... !!

Ég held ég þurfi að fara komast eitthvað út, hitta fólk.... ég er gjörsamlega að loka mig inni og safna sleni... þetta bara gengur ekki, þarf líka að fara að hreyfa mig.. en það er seinni tíma vandamál.......ha.....hmmm.......

4 comments:

Anonymous said...

Hér er maður bara að farast úr stressi. Á enn eftir að kaupa mikilvægustu jólagjafirnar og ekki nema 8 dagar til jóla!!!

En planið er að ljúka innkaupum í dag og nota það sem eftir er af dögunum í afstressun. Svo hægt verði að nýta jólafríið í piparkökunart og bókalestur. Sé þetta fyrir mér í hyllingum.

Anonymous said...

Fjúff. Búin að kaupa allar jólagjafirnar. :)

Loksins, loksins, loksins. Heiti því að vera búin að kaupa þetta allt fyrir desember á næsta ári, til að losna við óþarfa stress.

Anonymous said...

Inga mín...að hreyfa sig er ekki seinni tíma vandamál :) Gott að þið hafið það gott...hlakka til að sjá krílin mín :)

Anonymous said...

damn it... gleymdi að þú ert hérna líka.. :)
ég skal skokka út með ruslið þá...og til baka líka :D