Wednesday, May 16, 2007

Trampólínið okkar!











Er eiginlega með samviskubit, ætti að vera að borga þessu leikfangi barnapíulaun :D


Og þau eru gjörsamlega óþreytandi í þessu hoppi. Gaman að sjá líka hvað hugmyndaflugið fær að njóta sín hjá krökkunum, þau eru nebbla búin að búa til ótal leiki í kringum þetta líka og skemmta sér svakalega vel!




Tók nokkrar myndir af þeim í dag, þetta eru Sigurbjörg og tveir vinir úr skólanum, Palli og Birkir. Ég lofaði þeim að setja inn hérna svo þeir gætu sýnt mömmu og pabba líka.



Annars bara rólegt hérna hjá mér, gleymdi mér reyndar í gærkvöldi yfir tölvunni og fór ekki að sofa fyrr en um 3 í nótt!!! .....ehemm.... var að uppgötva nýjan leik og gat ekki hætt. Þetta er "rollercoaster tycoon" svipað dæmi og "sims" stórhættulegt að byrja á svona dóti. fékk nettan móral uppúr miðnætti reyndar og þreif baðherbergið :D ha ha ha!
Róra, EKKI BYRJA Á ÞESSUM LEIK!! (en ef þú stenst ekki freistinguna þá veit ég hvar þú finnur hann allann)
Gúbbæ

2 comments:

Bjarney Halldórsdóttir said...

Þetta er alvöru græja. Maður hefði nú verið til í að eiga eitt svona sem krakki.

Anonymous said...

Ég er ekki viss um að ég verði húkt á þessum eins og Tumblebugs því ég hef aldrei náð að detta inní Sims..........já sammála með að það ætti að borga trampólíninu laun haha, vorum uppí bústað um helgina og ég sá son minn eldri bara eiginlega ekki neitt, eða þannig sko hmmmmm.....
Verð að fara að drífa mig í helgarferð til þín sæta frænka.....