Tuesday, September 12, 2006

Hún Freyja litla


Er bara alls ekkert lítil lengur. get ekki haldið á hundinum lengur og er hún nú ekki nema rétt tæplega fjögurra mánaða!! Var að reyna kenna henni að "sækja" áðan, það var eiginlega BARA fyndið!! En það tókst á endanum... þarf örugglega að kenna henni þetta daglega í einhvern tíma samt, þvílíkt gullfiskaminni sem þessir hvolpar hafa :)
Það hefur gengið á ýmsu síðan hún kom aftur. hér hafa flogið niður blómasúlur, málningadolla, nagaðir þröskuldar og svo notar hún hvert tækifæri til að stinga hreinlega af, og horfir svo á mig eins og ég sé geimvera þegar ég reyni að skamma hana. En eins og með börnin, þá fyrirgef ég henni allt þegar hún er sofnuð :D ha ha ha!

8 comments:

Bjarney Halldórsdóttir said...

Ju hvað hún hefur stækkað. Er hér með myndir síðan í júlí:

http://skobara.blogspot.com/2006/09/freyja.html

Bjarney Halldórsdóttir said...
This comment has been removed by a blog administrator.
Bjarney Halldórsdóttir said...

Best að viðurkenna upp á sig sökina. Ég vildi reyna að búa til tengingu inn á síðuna mína, en það tókst ekki svo ég eyddu úr kommentinu.

ingamaja said...

KRIMMI ;)

Anonymous said...

HELGA MÖLLER!!!!!!!!!!!!!!

Anonymous said...

Hæ hæ skvís
Farðu nú að skrifa inn smá fréttir af ykkur, gaman að fylgjast með úr fjarlægð. Annars er ég líka flutt í sveitina reyndar aðeins styttra eða Selfoss og líkar bara vel. verðum í bandi kv Ásta Valdimarsd.

Anonymous said...

Heyrðu sko!!!
Þú ert nú alls ekki að standa þig í blogginu..........mig er farið að þyrsta í fréttir og ég get ekki hringt í þig ;)

Refsarinn said...

Halló góða það er svo sannarlega kominn tími á að heyra frá þér og þínum