Jæja þá, við erum orðin eins og jójó á milli Skagastrandar og Reykjavíkur :)
Erum eins og er sunnanmegin á landinu, þar sem sumarið er!!!
Ég fékk þetta yndislega frí í dag þegar amman hringdi og bað um að fá börnin í skrúðgöngu og fleira, þau voru að koma heim rétt í þessu, skemmtu sér rosa vel að horfa á fimleika sýningu og lúðrasveit og skáta eitthvað og solleis :) og eru núna bæði í baðkarinu að vökva gólfið!! Nenni ekki að æsa mig yfir því í dag.
Horfði á frábæra mynd í dag með honum Will Smith, hún heitir "Hitch" og ég hló mikið, gef þessari mynd einkunina "góð skemmtun".
Ég talaði við Kristian minn í dag, hann er kominn heill á húfi til Noregs og hefur það gott, held hann sé eitthvað að svipast um eftir vinnu þessa dagana, það ætti ekki að vera problem fyrir þann gáfumann :)
þá hef ég talið upp svona það allra helsta held ég. Er alveg svakalega dugleg að prjóna og það sama má segja um konurnar mínar fyrir norðan, allar með nítró í fingrum audda.
Svo er ég búin að eyða svo miklum peningum upp á síðkastið að ég býst við símtali frá seðlabankastjóra any day now... HALDA AÐ SÉR HÖNDUM Í EYÐSLU... heyrði ég í fréttunum einhverntíma nýlega... hí hí hí :D
búin að kaupa ísskáp, eldhúsborð og stóla, rúm handa krökkunum og margt margt fleira.
jæja öskrin og lætin að aukast frá baðherberginu... time for a lecture i guess..
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ég sé að teljarinn er kominn í 200!!! til hamingju :)
hey!! cool!!
mar bara vinsæll, betra að standa sig í blogginu þá :)
takk til allra sem kíkja á skrifin mín!!
Nú svo þú átt sökina á þessari þenslu sem er núna í þjóðfélaginu og veldur því að lánin mín hækka upp úr öllu valdi?
Reyndar vorum við að kaupa okkur kork á gólfið í eldhúsinu, en það telst auðvitað ekki með því eldhúsið okkar er frekar lítið...
Hæ hæ hlakka til að fá ykkur norður
var að hugsa um hvort við ættum ekki að skella okkur í Samkórin Björk hér
væri nú kannski bara ótrúlega gaman saman híhíhí sjáumst og hafið það gott!
Ég er að spá í að setja bara túrbó á kindurnar svo þær verði búnar að bera þegar þið flytjið og hjálpa þér í því !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!1
Post a Comment